https://open.spotify.com/playlist/27DQcKLLnaicIayczyv6fj?si=6N4ygOOOQxWWeGFg-MbFDQ&pi=e-hSqq3UBZRRSV Húsið mitt | Krakkakunst
top of page

Húsið mitt

Lagið er kennsluefni fyrir afstæðuhugtök, atvinnuheiti og tómstundir.

Lagið er sagt út frá sjónarhorni barns sem veltir fyrir sér hver eigi heima í blokkinni sem það býr í. Barnið kemst svo að því hver býr hvar og hverjar tómstundir viðkomandi eru.

Húsið mitt
kennslufræðilegar pælingar

Húsið mitt er lag sem er samið með það í huga að kenna ákveðinn orðaforða. Það eru afstöðuhugtökin, atvinnuheiti og að lokum með eldri börn er hægt að bæta við áhugamálum og íþróttum. Lagið var upphaflega samið því mér þótti vanta námsefni til að kenna afstöðuhugtökin. Þegar ég var að leggja lokahönd á verkið var ég með samverustund á elstu deild leikskólans. Þar hjó ég eftir því að börnin áttu ekki orð yfir algeng atvinnuheiti. Því ákvað ég að bæta þeim inn í textann sem og áhugamálum. Útfærsla lagsins er hugsuð þannig að kennari setji það upp á sjónrænan hátt. Uppsetningin er sú að þriggja hæða blokk er teiknuð upp þar sem persónan sem er að syngja lagið er staðsett á annarri hæð. Það er skemmtilegt að leyfa börnunum að vera virkir þátttakendur með því að fá að draga ákveðna þætti. Í fyrsta lagi fá þau að velja hvar viðkomandi á að eiga heima. Barnið getur staðsett manneskjuna á hæðinni fyrir ofan, neðan, við hliðina á, undir húsið, ofan á húsið eða jafnvel er hægt að setja viðkomandi hægra eða vinstra megin við húsið. Í öðru lagi geta börnin fengið að draga atvinnuheiti sem viðkomandi starfar við og í þriðja lagi er hægt að leyfa þeim að draga áhugamál eða íþrótt sem viðkomandi stundar. Með þessu fá börnin að vera virkir þátttakendur og einnig ná þau að tengja orðin við myndir sem gerir það að verkum að það sé auðveldara fyrir þau að sækja orðið seinna meir í langtímaminni sitt. Það getur verið betra fyrir nemendur að muna orð þegar þau eru tengd við myndir heldur en einungis notuð í orðræðu (Afshar og Mojavezi, 2017; Andra og Mathias, 2020; Bates og Son,2020; Permana, 2020;).

Þegar textinn var saminn var sérstaklega reynt að koma orðum sem hafa hljóðin [ð] og [þ] líkt og var gert hér að ofan í risaeðlulaginu. Í textanum var einnig reynt að koma fyrir sem flestum forsetningum og samtengingum. Samkvæmt rannsókn Eddu Rúnar Knútsdóttur (2008) virðast pólsk börn sem læra íslensku gleyma að setja ákveðna setningaliði í setningar hjá sér. Í þessu lagi líkt og í öllu öðru námsefni hér var tekið mið af orðtíðniorðabók barnanna (Jóhanna Thelma Einarsdóttir og fleiri, 2019).

Þegar textinn var saminn var sérstaklega reynt að koma orðum sem hafa hljóðin [ð] og [þ] líkt og var gert hér að ofan í risaeðlulaginu. Í textanum var einnig reynt að koma fyrir sem flestum forsetningum og samtengingum. Samkvæmt rannsókn Eddu Rúnar Knútsdóttur (2008) virðast pólsk börn sem læra íslensku gleyma að setja ákveðna setningaliði í setningar hjá sér.

Hér eru tvenn PDF skjöl.

Fyrra er söngtexti lagsins, gítargrip ásamt myndum til að ýta undir textann. 

Seinna skjalið er sjónræn uppsettning. 

Fyrstu tvær blaðsíðurnar eru til þess að setja lagið sjálft upp fyrir börnin. 

Næstu blaðsíður eru hin ýmsu atvinnuheiti og áhugamál. Það er gaman að prenta þau út og leyfa börnunum að draga eitt að hvoru í hvert skipti sem lagið er sungið. Þau fá svo að setja það hjá húsinu, þannig að einstaklingurinn eigi heima fyrir ofan, neðan, uppá húsinu, undir því, hægra eða vinstra megin við það eða við hliðiná. Þannig verður stundin lifandi, skemmtileg og þau fá tækifæri til að læra sem allra mest. 

bottom of page